05.03.2010 06:45
Yfir 50 skip föst í Eystrasaltinu .
Sirka 50 skip eru föst í ís í Eystrasaltinu milli Åland og Svíþjóðar .
Sænsku íssbrjótarnir eru á staðnum og reikna þeir með að öll skip verði
búið að losa fyrir kvöldið .
Her situr skipið Birger Jarl fast eitt af mörgum. (Foto: kustbevakningen.se)
Skrifað af Gunnar Jóhannsson
05.03.2010 04:36
Skip á Vopnafirði .
Víkingur AK-100 er auðsjáanlega að gera klárt í löndun,
myndina tók ég í gegnum vefmyndavélina á Vopnafirði um kl 9 í morgun? Spurt var hvað heitir skipið.
Valur Björn Línberg kom með svarið .
Vefmyndarvél , Vopnafirði .
Skrifað af Gunnar Jóhannsson
02.03.2010 10:42
Costa Europa hálfa leið upp á bryggju .
Það fór heldur ílla þegar skemmtiferða skipið Costa Europa ætlaði að
leggja að í Sharm el Sheik á Egyptalandi .
Þetta stóra lúxusskip endaði næstum upp á sjálvum kæjanum .
Þrír áhafnarmeðlimir drápust og fleiri farþegar slösuðust.
Það voru 1437 om borð í skipinu sem var á leið frá Dubai til
Savonan á Ítalíu með stopp í Egyptalandi .
Skrifað af Gunnar Jóhannsson
01.03.2010 20:04
Kvenfólk .
Allar konur eiga sér eina ósk .
Það er að eiga fjögur gæludýr,
Mink í fataskápnum,
Jagúar í bílskúrnum,
Tígrisdýr í rúminu,
Og Asna sem borgar svo fyrir allt saman .
Skrifað af Gunnar Jóhannsson
28.02.2010 15:15
Loðnuveiðar á Svaninum RE 45 .
© mynd Jónas Árnason
© Myndir Gunnar Jóhannsson
Skrifað af Gunnar Jóhannsson
27.02.2010 13:14
Skúta .
Þessi skúta var í Reykjavík 2002 til 2004 hún lág við syðstu bryggjuna
fyrir neðan Kaffivagninn ,eigandinn bjó í henni . Hvað hét hún ?
Núna er hún uppi á landi í Kaupmannahöfn .
Skrifað af Gunnar Jóhannsson
25.02.2010 11:28
Dýr hreinsun .
Eigandi af frakt skipinu Full City sem strandaði við strönd Noregs síðastliðið sumar á von á
reikning upp á 230 miljónir norskra króna ,það er sú upphæð sem Norska ríkið notaði við að
hreinsa upp oliu sem lak úr skipinu við strandið .
reikning upp á 230 miljónir norskra króna ,það er sú upphæð sem Norska ríkið notaði við að
hreinsa upp oliu sem lak úr skipinu við strandið .
Dýr hreinsun eftir Full City
Skrifað af Gunnar Jóhannsson
24.02.2010 07:46
Daníel SI 152.
Bátur þessi var smíðaður eftir teikningu Egils Þorfinnssonar úr Keflavík, 52ja tonna eikarbátur, sem nýsmíði nr. 4 hjá Skipasmíðastöð Hafnarfjarðar (Júlíus Nýborg) 1943. Kjölurinn var lagður í ágúst 1942, hljóp af stokkum 8. mars 1943 og afhentur í apríl sama ár. Hann var síðan endurbyggður hjá Skipavík hf. í Stykkishólmi 1976-1978.
Nöfn þau sem báturinn hefur borið eru: Guðmundur Þórðarson GK 75, Fálkanes SF 77, Guðmundur RE 19, Þorleifur Magnússon SH 172, Sonja B. SH 172, Bakkavík ÁR 100, Bjarnavík ÁR 13, Bjarnavík ÁR 20 og Daníel SI 152.
Afskráður 1992 .
Skrifað af Gunnar Jóhannsson
21.02.2010 14:02
Sportbátar í Tuborg höfn .
Fyrrverandi innsiglingar viti fyrir Tuborg höfn.
Myndir , Gunnar Jóhannsson .
Það eru margir flottir í þessari höfn og kosta ábyggilega drjúgan skilding .
Fleiri myndir í myndaalbúmi ...
Skrifað af Gunnar Jóhannsson
19.02.2010 08:12
Fagranes ÞH 123 .
mynd Gunnar Jóhannsson .
Fagranes ÞH 123 frá Þórshöfn ,mynd sem ég tók 1972 þarna var hann á
leiðinni að Langanesi ásamt okkur á Hafborginni GK99 ,báðir voru að
fiska í þorskanót mjög skemtilegt veiðafæri .
Skrifað af Gunnar Jóhannsson
18.02.2010 15:00
Myndasyrpa af Borgþór ÞH 231 .
Myndir sem ég tók af Borgþór sumarið 73 árið sem Árni frá Þórshöfn keypti
hann af pabba ,við vorum einnig á þorskanót á Hafborginni GK 99 .
Skrifað af Gunnar Jóhannsson
17.02.2010 14:00
Baldvin Þorsteinsson EA .
Mynd fengin á Google .
Fjölveiðiskipið Baldvin Þorsteinsson á strandstað , en hann strandaði í
Meðallandsfjöru í mars 2004 .( ég þekki ekki að drög strandsins .)
Skrifað af Gunnar Jóhannsson
16.02.2010 07:34
Bjørnsholm .
Bjørnsholm .
Það er hægt að fara í ýsma túra með þessum bát , bæði fiskitúra og einnig hægt að leigja
hann fyrir veislur og einnig skemmtitúra ,heimahöfn Nýhöfn .
Sparshipping .
Nánari upplýsingar um þennan bát er að finna undir tenglar hér til hægri á síðuni .
Skrifað af Gunnar Jóhannsson